|
|
03.05.2007 22:24:15 / drifa
ég var búin að skrifa rosa stóra færslu, en tölvan mín er með smá
mótþróa og þurrkaði hún allt út áður en það náði að
vistast. Er of þreytt til að setja þetta allt inn
aftur, sé til með hvort að ég nái því á morgun annars um
helgina. En já...ég er sem sagt komin aftur.....
»
20.01.2007 10:03:00 / drifa
Lenti í því seinnipartinn í gær að Hekla byrjaði að
æla... Og þar sem hún er ekki alveg að samþykkja það að
það er betra að æla í fötu heldur en á gólfi og á fötin sín....þá
var ég.....já í frekar subbulegu verki fram á kvöld.
Hún hafði auðvitað ekki list á kvöldmat, þannig að við settum
hana bara inn í rúm rétt um 8 og sofnaði hún
strax. Hún vaknaði svo um hálf 10, vildi koma
fram... svo að ég leyfði henni það og hún náði að borða
hálfa ristaða brauðsneið og drekka smá vatn. Og sem
betur fer hélt hún því niðri. Rétt rúmlega 10 var henni komið
aftur fyrir í rúminu og sofnaði hún þar, og mér til mikillar gleði
hélt hún brauðinu og vatninu niðri.
En þar sem hún hafði farið að sofa svona snemma, þá var hún
auðvitað vöknuð fyrir klukkan 7 i morgun, þannig að við fórum fram,
horfðum á einn Dóru þátt, og þá var klukkan orðin 7 og barnaefnið á
stöð 2 byrjað. Guði sé lof að þeir byrja klukkan 7 en
ekki klukkan 8 eins og RÚV.
Restin af deginum er svo óskrifað blað....fer allt eftir því
hvernig Hekla verður... Kannski ekki sniðugt að kikja mikið í
heimsóknir eftir svona ælu vesen.... Kannski við verðum bara heima
í rólegheitum...hún að leika sér og ég að skrappa....
»
19.01.2007 16:55:51 / drifa
Með þetta veður??? -6 stóð á mælinum í bílnum hjá
mér klukkan hálf 9 í morgun þegar að ég var að fara með Heklu
á leikskólann. Hver pantaði þennan hel*****
kulda??? Þetta er sko bara ekki í
boði.... ef einhver er að fíla þennan kulda þá skal ég
persónulega safna pening handa viðkomandi AÐRA leiðina til
Síberíu!
Jæja, að öðrum málum.... sem eru þegar að ég hugsa
það....engin! Já það er rétt...héðan er bara ekkert að
frétta. Fór jú til Boston í byrjun des að hjálpa Hildi
heim, náði nú að versla aðeins.... Keypti mér geggjuð
stígvél, og svo fullt af fötum á Hlíðar.
Jólin gegnu svo sinn vanagang... það voru 1-2 jólaboð alla
dagana....voða ljúft að þurfa ekki að elda....en ég hefði nú samt
alveg viljað vera bara heima einhverja þessa daga, kúra bara í
náttfötunum með góða bók eða bíómynd... En sá tími mun koma...
Nú hafa nokkar af mínum vinkonum ákveðið að læsa sínum
bloggum.... Finnst það rosalega sniðug hugmynd... vissi
bara ekki að það væri hægt, svo að ég hef tekið þá ákvörðun, eftir
að hafa fundið út hvernig ég læsi henni að gera það... hún verður
opin samt núna yfir helgina, en eftir það verðið þið að senda mér
póst um ósk um aðgang ef þið viljið lesa bullið í mér...
»
06.12.2006 09:34:19 / drifa
...og mikið stress....
Er búin að vera að vinna fyrir kallinn aðeins núna síðustu
daga. Hef svo verið að þvo þvott og reyna að taka til,
því að jólin eru víst á næsta leyti....
Fór á Frostroses í gær, í boði Glitnis. Það var
bara geggjað. Var fyrst ekki að nenna að fara....þekkti bara
Röggu Gísla og Eivor, en skellti mér svo bara og sé ekki eftir
því. Það var svo fordrykkur á undan, freyðivín og
snittur. Rosa flott.
Nú og svo er ég að fara að skreppa aðeins til Boston um
helgina. Fer á morgun, fimmtudag, og kem heim á
mánudagsmorgun. Ætla nú ekki að versla neitt....kannski
pínku pons....en ekkert á við það sem ég gerði í Minneapolis í
sept. Ef ég geri það, þá skilur kallinn endanlega við
mig
Læt í mér heyra eftir helgi.....
»
29.10.2006 01:22:57 / drifa
....eða svona næstum því. Er búin að vera á
fullu núna seinni partinn að baka og skreyta Dóru köku handa
unganum mínum. Þar sem að afkvæmið á afmæli núna á
næstu dögum, þá var ákveðið að halda upp á það á morgun, og þar sem
maður á von á góðum slatta af ættingjum, þá varð ég náttúrulega að
skella í eins og eina-tvær kökur.
Fyrir valinu varð Dóru kaka sem aðalkaka, svo veður eitthvað
meira...gerði í dag líka ístertu og steikti svona míni
kjötbollur. Mamma ætlar svo að koma á morgun og gera
fyrir mig eplarétt....svona rétt á meðan að ég þurrka af og
skúra, en það eru einu verkefnin sem eru eftir....já og taka til
inni hjá Heklu....en það tekur ekki nema ca 10 mín og verður gert
svona rétt áður en gestirnir ganga í bæinn....svona svo að hún
verði ekki búin að róta öllu út aftur
En það verða teknar myndir í afmælinu og mun ég setja þær inn á
síðuna hennar Hekla við fyrsta tækifæri. En nú er ég
farin að sofa.....Góða nótt
»
14.10.2006 22:18:25 / drifa
Ég gleymdi sem sagt að minnast á eitt smávægilegt atriði þegar að
skrifaði inn færsluna í gær. Á mánudeginum eftir að við
komum út, fórum við í svona dekurdag á snyrtistofu í
mollinu. Ég fór í klukkutíma nudd, fótsnyrtingu,
andlitsbað, fékk gelneglur, og ætlaði svo að fá mér
strípur....svona aðeins til að laga rótina..... Það fór ekki
alveg eins og ég hafði hugsað mér..... Ég sagði stelpunni að
ég vildi láta klippa mig, og að hún mætti ráða hvernig, ef ég gæti
bara náð hárinu í tagl, og hún hoppaði næstum hæð sína af
gleði.....nú og svo sagði ég henni að ég væri svona að hugsa um að
biðja hana um að setja ljósar strípur í hárið, en henni fannst það
ekki alveg nógu gott.....sérstaklega þar sem við vorum báðar
sammála um það að endarnir væru orðnir svolítið...."gráir" af
oflitun.....og hún spurði hvað ég væri búin að vera lita á mér
hárið lengi, og þegar að ég sagði í svona 12-15 ár, þá fékk hún
greyið nett áfall. Svo að hún sagði mér að sér langaði
að prófa svolítið.....og spurði hvort ég treysti henni, og ég ákvað
að taka smá áhættu og sagði "Já!". Nú hún setti
ljósar strípur í mig og dökkar strípur líka.....OG litaði svo
restina af hárinu einum tóni ljósara en rótin á mér
var. Svo núna er ég sem sagt komin með minn rétta
hárlit aftur eftir öll þessi ár. Svo þegar að hún
var að skola litinn úr, og sá krullurnar mínar, þá (þar sem hún
fékk að ráða klippingunni) klippti hún það rennandi blautt og
klippti á mér hárið eftir krullunum. Ég hef
aldrei, aldrei, ALDREI verið eins ánægð með klippingu
áður. Og það tók mig viku að venjast hárlitnum, en núna
er ég rosalega ánægð með hárið á mér
»
14.10.2006 00:39:02 / drifa
Jæja þá er ég komin heim....reyndar fyrir löngu.....en hef bara
ekki haft orku í að skrifa mikið inn á tölvuna.
Fór sem sagt (fyrir þá sem ekki vita) til Minneapolis í viku með
nokkrum skrappvinkonum. Og var þetta geggjuð
ferð. Við Hildur vinkona töluðum um að gera þetta að árlegum
viðburði Nú og auðvitað var VERSLAÐ....hverju öðru
bjuggust þið við??? Keypti reyndar mest á
Heklu, næstum fulla ferðatösku af fötum....en hey....er þetta ekki
alltaf svona þegar að maður eignast barn.....maður eyðir meiri
pening í föt á þau en sjálfan sig. En alla vega
þá á hana ekki eftir að skorta föt fram á næsta ár. Náði nú
samt að kaupa eitthvað smotterí af fötum á sjálfa mig, fann reyndar
engar buxur, en keypti mér í staðin nokkra hversdags boli og nokkra
spari boli, 2 skó og náttföt/heimaföt, æi þið vitið...svona
sem þægilegt er að dúllast í heima á kvöldin og þegar að maður er
nýkomin úr sturtu.
Og JÁ....til að svara spurningu nokkurra....þá keypti ég
svolítið af skrappi og stimplum. Hlakkað geggjað til að
fara að nota þetta. Er bara búin að vera smá svona
niðurdregin síðustu daga, er búin að vera skökk í bakinu og
það fer í skapið á mér....verð svona hálf niðurdregin
eitthvað....en það ætti að fara að lagast þar sem ég á tíma í
hnykkingu í næstu viku.....hef einmitt lítið getað sofið út af
bakinu.....
En af Heklu að frétta er það að orðaforðin er orðin
stórkostlegur....hún veit sko upp á hár að hún er 2ja ára, og hún
getur talið upp á 12. (hún vill reyndar stundum gleyma 6 og 7, en
þetta kemur allt saman) Er búin að ákveða að
halda upp á afmælið hennar þann 29. okt. þannig að Hildur
vinkona, Gabríella Kamí og Anika Rós geta komið í
afmælið. Ætla að baka Dóru köku og er ég nokkuð viss um
að Heklan mín eigi eftir að vera ánægð með
hana.
Um næstu helgi erum við svo að fara í Halloween partý....Hekla
getur annað hvort farið sem Tumi Tígur úr Bangsimon eða sem
Dóra....keypti Dóru búning á hana úti. Á sjálfa mig
keypti ég búning, sem á að vera að Grískri gyðju....hann er reyndar
full mikið flegin, á eftir að sjá hvort ég geti ekki verið í
hlýrabol innan undir.......
»
08.08.2006 15:33:05 / drifa
....er liðin og alvara lífsins tekin við. Fór niður
í HT á laugardaginn til að skúra, kom svo heim, tók okkur öll til
og kl 5 vorum við lögð af stað upp í sumarbústað hjá
tengdó. Þar tók við bara algjör afslöppun, Hekla
fílaði sig í botn. Gat verið úti að leika sér svotil allan
daginn. Afi hennar og pabbi tóku það aðsér að leika við
hana og fylgjast með henni. Á meðan sat ég inni og
saumaði kort. Fór reyndar á sunnudeginum á Selfoss að
hitta nokkrar skrappvinkonur. Þær voru reyndar
ekki að skrappa heldur að perla og sauma út, og lét ég plata mig í
að gera eina svona litla perlubjöllu, sem ég svo gleymdi uppi í
bústað. Var ég með þeim í rúma 3 tíma og var það mjög
gaman. Svo var klukkan orðin 4 ok komin tími á að koma
sér til baka upp í bústað, og var ég komin tímanlega fyrir
kvöldmat.
Við komum svo heim í gærkvöldi, sluppum alveg við alla umferð og
svo var það bara venjuleg rútina í dag. Þvo þvott, setja i
uppþvottavélina, hugsa um Heklu, fara út í búð að versla og þess
háttar störf. Jú það var ein
breyting.....Berglind frænka kom í heimsókn, ég var að kenna henni
að búa til svona nammikrans til að hafa á borði. Heklu
fannst voða merkilegt að fá stóru frænku svona í heimsókn, var hún
alltaf að koma til Berglindar til að sjá hvað hún væri að gera.
»
03.08.2006 19:10:20 / drifa
Fór í dag í Völustein, það á
víst að loka búllunni, og keypti mér
tvinna. Já, nú hugsar þú
kannski....tvinna....af hverju gat hún ekki keypt hann í
Rúmfó???. Já, málið er nefnilega það að þetta er
sérstakur tvinni. Tvinni sem ég nota þegar að ég
sauma kortin mín (myndir af þeim inni á síðunni hennar
Heklu), og þar sem að það er verið að loka Völustein þá er
flest allt í búðinni á 50% afslætti. Þannig að ég
fór með Hildi vinkonu í dag og keypti mér nokkra
liti. Ætla svo í kvöld eða í fyrramálið að fara
yfir alla tvinnana mína, skrifa niður númerið á þeim, og fara
svo kannski á morgun að kaupa fleiri. Alla vega
af þessum sem ég nota mikið, því að svona verð eins og ég
fékk þá í dag verður sko ekki í boði eftir nokkra
daga.
Hef svo verið að velta því fyrir mér, hvort að
það séu einhverjir sem lesa þetta blogg. Kannski að það
skipti ekki máli.....ég er jú líka að þessu fyrir sjálfa
mig
»
31.07.2006 19:55:48 / drifa
Gleymdi að setja það hér inn í gær að ég bjó til nýjan
tengil. Þetta er linkur á síðuna hjá Gabríellu Kamí og Aniku
Rós sem eru dætur Hildar vinkonu. Þær eru með Goldenhar
og ég held að það séu bara 6 börn á öllu landinu með þetta ef ég
tel þær báðar með.
»
30.07.2006 23:15:41 / drifa
Ég var nú nokkuð dugleg í dag. Það sem mér
tókst að afreka var þetta: Á meðan að Hekla svaf úti á
svölum þá vann ég þær nótur sem komnar eru, gaf svo litla dýrinu
mínu að borða þegar að hún var vöknuð, fór og sótti Hildi
vinkonu og skelltum við okkur niður í Ráðhús til að skoða
samsýningu sem þar er. Ein vinkona okkar á verk
þar. Nú svo eftir að hafa skoðað sýninguna fórum við í
smá labbitúr um miðbæinn, ákváðum svo að skella okkur í
Smáralindina, þar löbbuðum við um og versluðum svona
smá. Fórum meðal annars í dótabúðina og ég keypti svona
sandkassa dót fyrir Heklu og svona lítið leiktjald hvoru tveggja á
50% afslætti.
Já og svo fór ég um daginn í Kringluna og keypti mér geggjaða
skó. Get ekki alveg sagt ykkur hvaða merki þeir eru þar
sem ég kann ekki að skrifa það rétt og nenni ekki að hlaupa fram og
gá að því, en þetta eru svona hálfgerðir ballerínu skór eins og eru
í tísku núna. En OMG hvað þeir eru þægilegir.....var ég
kannski búin að nefna það???
Svo hef ég aðeins verið að skrappa.....er búin með nokkrar síður
sem ég þarf endilega að fara að taka myndir af og setja inn á
síðuna hennar Heklu.
»
18.07.2006 22:52:51 / drifa
Fór í gærkvöldi að hitta nokkrar skrappvinkonur. Við vorum nú
aðallega að spjalla og svona, en mikið rosalega var gaman. Við
hittumst heima hjá Jónu, og við Hildur réðumst á tölvuna hennar,
vorum þar í geggjuðu kjánakasti. Dældum út aulabröndurum, sem varð
til þess að við orguðum úr hlátri, vorum komnar með í magan, og það
besta var að þær frammi voru ekki að fatta hvað væri svona gaman
hjá okkur. Ætla ekki að fara að reyna að lýsa því hér, því eins og
í gær....þú hefðir þurft að vera þar til að fatta djókið. En
allavega, þá hef ég ekki skemmt mér svona vel eða hlegið svona í
langan tíma, án gríns þá var ég um það bil að pissa á mig af hlátri
nokkrum sinnum, og það er ekki laust við að ég sé með harðsperrur í
maganum eftir gærkvöldið.
»
15.07.2006 13:06:10 / drifa
.....hér inni, en það er komin færsla inni á síðunni hennar
Heklu. Sé til hvort að ég nenni að endurtaka flesta
allt þar hingað inn eftir helgi, annars verður smá bið eftur
uppfærslu þar sem ekki mikið gerist hjá mér þessa dagana.
»
18.05.2006 11:47:03 / drifa
Jæja, þá er komið að því. Undankeppnin er í kvöld, og ég
ætla að horfa. Já ég viðurkenni það alveg að mér finnst
þrælgaman af þessarri keppni og horfi alltaf á
hana. Og mér finnst nokkuð spennandi að sjá hvort
að Silvía Nótt komi okkur upp úr undankeppninni og í stóru keppnina
á laugardag. Ég er svona eiginlega að vona það,
þar sem að það verður meira "spennandi" að horfa á aðalkeppnina ef
Silvía verður með. Svona til að sjá hverjir gefa okkur stig,
hversu mörg og það allt.
Það er allt að verða klárt hér heima fyrir partýið á
laugardaginn. Ég keypti mér kjól til að vera í við
buxur úti í Köben og ætla ég að vera í honum, nú svo lét ég laga
hálsmenið mitt og eyrnalokkana sem ég ætla að vera með við kjólinn,
og keypti mér líka nýja spari skó frá Ecco út í Köben svo að ég
verð svaka flott (eða ég vona það allavega).
Matseðillinn er svotil komin,og ég fer í dag að kaupa allt inn, gos
í bolluna, snakkið og allt hitt. Mamma ætlar að
vera með Heklu, svo að þetta er bara allt að smella
saman. Mér er sko strax farið að
hlakka til, hafa fullt af vinum okkar hér, og bara spjalla og
skemmta mér með þeim. Djamma og djúsa og alles
Eigið gott kvöld í kvöld.......og......
ÁFRAM ÍSLAND!!!
»
11.05.2006 23:45:52 / drifa
Jæja þá er enn einn dagurinn á enda, og ég einum degi eldri en í
gær. Það gerist nú ekki mikið margt vert hjá mér
þessa dagana. Kallin var í frí á þriðjudag og
miðvikudag, og notuðum við tímann í að taka aðeins til hérna
heima. Fór svo á þriðjudagskvöldið að hitta nokkrar
skrappvinkonur. Og það var svo gaman hjá okkur að
við ákváðum nokkrar að hittast heima hjá Hildi vinkonu í morgun,
þar sem að hún er að fara norður og verður þar í 10 daga.
Ég er búin að vera í smá líkamlegri lægð núna, veit af henni, en
kem mér ekki í það að vinna úr henni. Hef bara ekki
alveg nógu mikið sjálfstraust núna, það eru svona smá hlutir sem
gera mér erfitt fyrir og aðrir sem hjálpa ekki upp á skapið.
Orðaforðinn hjá Heklu eykst finnst mér næstum vikulega, sem er
bara gaman, og vonandi verður hún komin á fullt í haust þegar að
hún byrjar á leikskólanum. Og hún þroskast svo
mikið og er bara svo klár að mér finnst alveg æði að vera mamma
hennar. Hún fór í 18 mánaða skoðun núna á mánudaginn,
og er hún orðin 10,755 gr og 84 cm. Svo fékk hún sprautu, og
henni gat ekki staðið meira á sama. Það breyttist ekki
einu sinni svipurinn á andlitinu á henni. Ekkert smá
dugleg.
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|